Nýasta áhugamálið mitt er ferðaþjónusta sem ég hef mikið gaman að. Síðustu fimm árin hef ég leigt sumarhús fjölskydunnar og nú einnig síðan 2018 glæsilega íbúð á besta stað Reykjavíkur.

Ég hef gaman að þjónusta gesti og fljótlega fékk ég stimpilinn SUPERHOST hjá AIRBNB og þegar Airbnb tóku upp gæðaþjónustu sem þeir kalla AIRBNB PLUS sem aðeins útvaldir fá þá bauðst okkur að vera með eina fyrstu íbúðina þar.

Að þjónusta erlenda gesti, skipuleggja með þeim og mæla með því sem ég tel að sé áhugavert tekur tíma en þegar uppi er staðið og ánægðir gestir gefa fullar stjörnur og góða umfjöllun er það klapp á bakið notarleg tilfinning.

Gestgjafinn

 
Previous
Previous

Heildsalinn